
Uppsetning forrita og hugbúnaðar
táknar .sis-forrit,
Java-forrit,
að forritið hafi
ekki verið sett upp að fullu og
að forritið sé uppsett
á samhæfu minniskorti.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit
og annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með
Java VerifiedTM.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
• Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda
eða framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða frekari uppl.
.
• Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins
skaltu velja
Valkostir
>
Skoða vottorð
. Sjá
„Vottorðastjórnun“ á bls. 110.
• Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu
aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort
upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða
öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem var
fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið
skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur
með því að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða
öryggisafritið.
• Nauðsynlegt er að hafa .jar-skrá til að setja upp
Java-forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig
um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að
velja aðgangsstað. Þegar þú hleður niður .jar-skránni
geturðu þurft að slá inn notandanafn og lykilorð til að
fá aðgang að miðlaranum. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila eða
framleiðanda forritsins.
1
Til að staðsetja uppsetningarskrá skaltu ýta á
og
velja
Verkfæri
>
Stj. forrita
. Einnig er hægt að leita
í minni tækisins eða á minniskorti (sé það í tækinu) í
Skr.stj.
eða opna skilaboð í
Skilaboð
>
Innhólf
sem
inniheldur uppsetningarskrá.
2
Í
Stj. forrita
skaltu velja
Valkostir
>
Setja upp
.
Í öðrum forritum skaltu fletta að uppsetningarskránni
og ýta á
til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar
um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án
rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Til að ræsa uppsett forrit skaltu staðsetja það í
valmyndinni og ýta á
.

Verkfæri
116
Til að koma á tengingu við símkerfi og skoða
viðbótarupplýsingar um forrit skaltu velja
Valkostir
>
Opna vefsíðu
, ef sá valkostur er til staðar.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir
upp eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Til að senda uppsetningarskrána á hjálparskjá þar sem
hægt er að skoða hvað hefur verið sett upp eða fjarlægt
skaltu velja
Valkostir
>
Senda notk.skrá
>
Sem SMS
eða
Með tölvupósti
(aðeins til staðar ef réttar
tölvupóststillingar hafa verið tilgreindar).
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt
vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en eins
vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu
og virkni tækisins eða valdið því að það virki ekki.