Símtalsstillingar
Senda mitt númer
—Veldu
Já
eða
Nei
til að stilla símann
þannig að sá sem þú hringir í sjái hann eða sjái hann ekki.
Að öðrum kosti getur þjónustuveitan sett þessa stillingu
upp þegar þú gerist áskrifandi að þjónustunni.
Stillt af
símkerfi
birtist á skjánum.
Símtal í bið
—Ef þú kveikir á þessari stillingu (sérþjónusta)
lætur símkerfið þig vita ef einhver hringir í þig þegar þú ert
með símtal í gangi. Hægt er að sjá hvort aðgerðin er virk
með því að velja
Athuga stöðu
. Veldu
Gera virkt
eða
Ógilda
til að kveikja eða slökkva á aðgerðinni.
Hafna símtali með SMS
—Veldu
Já
til að senda
textaskilaboð til þeirra sem reyna að hringja í þig þar sem
þú lætur þá vita af hverju þú getur ekki svarað símtalinu.
Sjá „Símtali svarað eða hafnað“ á bls. 62.
Texti skilaboða
—Skrifaðu textann sem á að senda í
skilaboðum þegar þú hafnar símtali.
Mynd í myndsímtali
—Þú getur valið að senda ekki
hreyfimynd þegar einhver hringir í þig. Veldu kyrrmynd
sem birtist þá í stað hreyfimyndarinnar.
Sjálfvirkt endurval
—Veldu
Virkt
og þá gerir tækið allt að
tíu tilraunir til að ná sambandi ef það tókst ekki í fyrstu
tilraun. Ýttu á
til að slökkva á sjálfvirka endurvalinu.
Samantekt e. hring.
—Veldu þessa stillingu ef þú vilt að
tækið birti í stutta stund upplýsingar um áætlaða lengd
hvers símtals að því loknu.
Hraðval
—Veldu
Virkt
og þá er hægt að hringja í númerin
sem eru tengd við hraðvalstakkana (
–
) með því
einu að halda tökkunum inni. Sjá einnig „Símanúmer valið
með hraðvali“ á bls. 58.
Takkasvar
—Veldu
Virkt
. Til að svara innhringingu skaltu
ýta snöggt á hvaða takka sem er, nema
,
,
og
.
Lína í notkun
—Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef
SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.
Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og senda
textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum
línum, burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú
velur
Lína 2
og hefur ekki gerst áskrifandi að þessari
sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er
valin birtist
táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Ábending! Til að skipta á milli símalínanna skaltu
halda inni
takkanum í biðstöðu.
Verkfæri
106
Línuskipting
—Til að hindra að skipt sé á milli lína
(sérþjónusta) skaltu velja
Gera óvirka
ef SIM-kortið
styður það. Þú þarft að hafa PIN2-númerið til að
breyta þessari stillingu.