Tölvutengingar
Tengja þarf tækið við samhæfa tölvu til að gera
eftirfarandi:
• Flytja upplýsingar milli Nokia PC Suite forrita og
tækisins. Svo sem til að samstilla dagbókaratriðið
eða flytja myndir.
• Nota tækið sem mótald til að tengjast netþjónustu, t.d.
internetinu.
Hægt er að tengja tækið við samhæfa tölvu með samhæfri
USB-snúru eða snúru fyrir raðtengi, eða um innrauða
tengingu eða Bluetooth.
Nákvæmar uppsetningarleiðbeiningar er að finna í
notendahandbókinni með Nokia PC Suite.
Ábending! Þegar þú notar Nokia PC Suite í fyrsta
skipti skaltu nota Get Connected forritið í Nokia PC
Suite til að tengjast við tölvuna þína.