Nokia N93 - Mikilvægar öryggisupplýsingar

background image

Mikilvægar öryggisupplýsingar

Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu
kveikja á dulkóðuninni, fyrst í aðgangsstaðatækinu og
svo í hinum tækjunum sem eru tengd við það. Nánari
upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna. Halda skal
öllum númerum leyndum og geyma þau á öruggum stað
fjarri tækjunum.

Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta
stillingunum fyrir netaðgangsstað í Nokia-tækinu
er að finna í „Aðgangsstaðir“ á bls. 106.

Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimanet með
samhæfu tæki skaltu nota eina af dulkóðunaraðferðunum í

Öryggi þráðl. staðarnets

þegar þú stillir

netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar líkurnar á að
óviðkomandi komist inn á kerfið.

Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast við
það og heimanetið. Ekki samþykkja beiðnir um tengingu frá
tækjum sem þú þekkir ekki.

Ef þú notar þráðlaust staðarnet í kerfum sem án
dulkóðunar skaltu slökkva á samnýtingu Nokia N93 skráa
með öðrum tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár.
Til að breyta stillingum, sjá „Stillingar heimanets“ á bls. 88.