Nokia N93 - Heimanet

background image

Heimanet

Tækið þitt er UpnP-samhæft. Með því að nota
aðgangsstaðatæki eða beini (router) fyrir þráðlaust
staðarnet geturðu búið til heimanet og tengt samhæf
UPnP-tæki við það, t.d. Nokia-tækið, samhæfa tölvu,
samhæfan prentara, samhæft hljóðkerfi eða sjónvarp, eða
hljóðkerfi/sjónvarp sem er búið samhæfum móttakara fyrir
þráðlaus kerfi.

Til að geta notað þráðlausa staðarnetsvalkostinn í Nokia
N93 á heimaneti þarf þráðlaus staðarnetstenging að vera
sett upp í heimahúsi og önnur UPnP-heimatæki að vera
tengd við það.

Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu
staðarnetstengingarinnar. Notaðu heimanetið á þráðlausu
staðarneti (grunnkerfi) með aðgangsstaðatæki og með
kveikt á dulkóðun.

Hægt er að deila (samnýta) skrám sem eru vistaðar í

Gallerí

með öðrum UPnP-tækjum á heimaneti. Stillingar

background image

Tengingar

88

fyrir

Heimanet

eru valdar með því að ýta á

og velja

Tenging

>

Heimanet

. Einnig er hægt að nota heimanetið

til að skoða, spila, afrita og prenta samhæfar skrár í

Gallerí

. Sjá „Skrár skoðaðar“ á bls. 89.

Mikilvægt: Alltaf skal nota eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar og minnka hættuna á að einhver
fái aðgang að gögnum í heimildarleysi.

Tækið er aðeins tengt heimanetinu ef þú samþykkir beiðni
um tengingu frá öðru tæki eða velur í

Gallerí

þann kost að

spila, prenta eða afrita skrár í Nokia-tækinu eða leitar að
öðrum tækjum í möppunni

Heimanet

.