Nokia N93 - Bluetooth-tenging

background image

Bluetooth-tenging

Hægt er að tengjast þráðlaust við samhæf tæki með
Bluetooth. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur og
aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Hægt er að
nota Bluetooth til að senda myndir, hreyfimyndir, tónlist,
hljóðskrár og minnismiða og tengjast þráðlaust við
samhæfar tölvur (t.d. til að flytja skrár) eða til að tengjast
við samhæfan prentara til að prenta myndir með

Myndprentun

. Sjá „Myndprentun“ á bls. 42.

Þar sem tæki með Bluetooth nota útvarpsbylgjur til
samskipta þarf tækið ekki að vera í beinni sjónlínu við hitt
tækið. Nóg er að tækin séu í innan við 10 metra (33 feta)
fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða annarra
raftækja.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification
2,0 sem styður eftirfarandi snið: Basic Printing Profile,

background image

Tengingar

84

Generic Access Profile, Serial Port Profile, Dial-up
Networking Profile, Headset Profile, Hands-Free Profile,
Generic Object Exchange Profile, Object Push Profile,
File Transfer Profile, Basic Imaging Profile, SIM Access
Profile og Human Interface Device Profile. Til að tryggja
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni
skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir
þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.

Útskýring: Snið tengist þjónustu eða virkni og

skilgreinir hvernig mismunandi tæki tengjast. Til
dæmis er handfrjálsa sniðið notað til að tengja
handfrjálst tæki og símann. Til að tæki séu samhæf
þurfa þau að styðja sömu snið.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á
sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum
eða þjónustuveitunni.

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka
endingu rafhlöðunnar.

Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst.
Nánari upplýsingar um læsingu tækisins er að finna í
„Öryggi“ á bls. 109.