Nokia N93 - Snið án tengingar

background image

Snið án tengingar

Sniðið „ótengdur“ gerir þér kleift að nota tækið án þess að
tengjast við símkerfið. Þegar þú virkjar sniðið Ótengdur er
slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið og það gefið
til kynna með

í sendistyrksvísinum. Lokað er á allar

þráðlausar sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir að
senda skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem
þau eru send síðar.

Viðvörun: Í sniði án tengingar geturðu hvorki hringt

né tekið á móti símtölum. Áfram er hægt að hringja í
ákveðin neyðarnúmer en engar aðrar aðgerðir, þar sem
tenging við símkerfið er nauðsynleg, eru mögulegar.
Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina. Ef
tækinu hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið.

Viðvörun: Það verður að vera kveikt á tækinu til að

hægt sé að nota sniðið Ótengdur. Ekki má kveikja á
tækinu þar sem notkun þráðlausra tækja er bönnuð eða
þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

Þegar þú hefur valið sniðið Ótengdur geturðu áfram notað
þráðlaust staðarnet (ef það er til staðar), t.d. til þess að
lesa tölvupóst eða vafra á internetinu. Mundu að fara að
öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu. Sjá „Þráðlaust staðarnet“ á
bls. 17.

Til að skipta úr Ótengdur yfir í annað snið skaltu ýta
á

og velja síðan snið. Þá verða þráðlaus samskipti

aftur möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir hendi).
Ef Bluetooth-tenging er virk þegar kveikt er á sniðinu
Ótengdur er slökkt á henni. Bluetooth-tengingunni
er sjálfkrafa komið á aftur eftir að slökkt er á sniðinu
Ótengdur. Sjá „Stillingar“ á bls. 84.