
Efni flutt úr öðru tæki
Hægt er að afrita efni eins og tengiliði og dagbókarfærslur
úr samhæfu Nokia-tæki yfir í Nokia-tækið þitt með
Bluetooth eða innrauðu tengi. Það fer eftir gerð símans
hvaða efni er hægt að afrita.
Þú getur notað SIM-kortið þitt í hinu tækinu. Ótengda
sniðið er sjálfkrafa valið þegar kveikt er á Nokia-tækinu án
þess að SIM-kort sé í því.
Flutningur efnis
1
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Flutningur
.
2
Veldu
Halda áfram
í upplýsingaglugganum.
3
Veldu hvort þú vilt flytja gögnin um Bluetooth eða
innrautt tengi. Bæði tækin verða að styðja gerðina.
4
Ef þú velur Bluetooth þá skaltu velja
Halda áfram
til að
Nokia-tækið leiti að tækjum með Bluetooth-tengingu.
Veldu hitt tækið af listanum. Nokia-tækið biður þig að
slá inn kóða. Sláðu inn kóða (1-16 tölustafi að lengd)
og veldu
Í lagi
. Sláðu inn sama kóða í hitt tækið og
veldu
Í lagi
. Þá eru tækin pöruð. Sjá „Pörun tækja“ á
bls. 86.
Tækið kann að senda
Flutningur
í sum tæki í
skilaboðum.
Flutningur
er sett upp í hinu tækinu
með því að opna skilaboðin og fylgja leiðbeiningunum
á skjánum.
Ef þú hefur valið innrauða tengingu skaltu tengja tækin
saman. Sjá „Innrauð tenging“ á bls. 87.
5
Í Nokia-tækinu þínu skaltu velja efnið sem þú vilt afrita
úr hinu tækinu.
Efnið er afritað úr minni og af samhæfu minniskorti (sé það
til staðar) hins tækisins á samsvarandi stað í Nokia-tækinu
og á minniskort þess (sé það til staðar). Afritunartíminn fer
eftir því gagnamagni sem á að flytja á milli tækjanna. Hægt
er að hætta við afritunina og halda henni áfram síðar.
Til að sjá skráarupplýsingar um fyrri flutning skaltu velja
Flutningsskrá
á aðalskjánum.
Til að sjá úr hvaða tækjum þú hefur afritað eða flutt gögn
skaltu velja
Símar
á aðalskjánum.

Nokia N93
tæ
kið
15