
Myndavél
Í Nokia N93 eru tvær myndavélar, önnur með hárri
upplausn á hlið tækisins (aðalmyndavélin) og hin með
minni upplausn fyrir ofan aðalskjáinn (aukamyndavélin).
Hægt er að nota báðar myndvélarnar til að taka venjulegar
myndir og hreyfimyndir með andlits- eða landslagsstillingu.
Nokia N93 tækið styður allt að 2048x1536 punkta
myndupplausn í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin
í þessum efnum getur virst önnur.
Myndir og hreyfimyndir vistast sjálfkrafa í möppunni
Myn. & hr.m.
í
Gallerí
. Myndir eru teknar á .jpg-sniði.
Myndinnskot eru tekin upp á .mp4-sniði eða 3GPP-sniði
með endingunni .3gp (
Samnýting
stillingar). Sjá „Stillingar
fyrir hreyfimyndir“ á bls. 24.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir í
margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti
eða um Bluetooth-tengingu.