Myndprentun
Notaðu
Myndprentun
til að prenta myndir og notaðu
samhæfa gagnasnúru, þráðlaust staðarnet, Bluetooth-
tengingu eða samhæft minniskort (ef slíkt er fyrir hendi).
Aðeins er hægt að prenta myndir sem eru á jpeg-sniði.
Myndirnar sem teknar eru með myndavélinni eru
sjálfkrafa vistaðar á jpeg-sniði.
Myndir eru prentaðar með því að velja myndina sem á
að prenta og svo valkostinn
Myndprentun
í galleríinu,
myndavélinni, myndvinnslunni eða myndskjánum.
Áður en hægt er að prenta út á prentara sem er samhæfur
Myndprentun
þarf að tengja gagnasnúruna.