
Raddstýrð hringing
Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki
á rödd notandans þannig að hann þarf ekki að taka upp
raddmerki áður en hann notar þær. Þess í stað býr tækið til
raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber það raddmerki
sem notandinn segir saman við þær. Raddkennslin í tækinu
laga sig að rödd aðalnotandans til að líklegra sé að tækið
beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið
sem er vistað á tengiliðarspjaldinu. Til að hlusta á
tilbúna raddmerkið skaltu opna tengiliðarspjald og
velja
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið
í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1
Haltu inni
takkanum í biðstöðu til að hefja
raddstýrða hringingu. Ef þú notar samhæft höfuðtól

Hringt úr tækinu
59
með höfuðtólstakka skaltu halda honum inni til að
hefja raddstýrða hringingu.
2
Stuttur tónn heyrist og textinn
Tala nú
birtist á
skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið sem
er vistað á tengiliðarspjaldinu.
3
Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því
tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Eftir 2,5 sekúndur hringir tækið í
númerið.
Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja
Næsta
til að
skoða aðrar niðurstöður á lista eða
Hætta
til að hætta
við raddstýrða hringingu.
Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur
tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð:
Farsími
,
Farsími
(heima)
,
Farsími (vinna)
,
Sími
,
Sími (heima)
og
Sími
(vinna)
.