
Stillingar
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu
SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar
þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en þú getur notað
Samn. hre.m.
. Uppsetning SIP-sniðs gerir þér kleift að
koma á rauntímasambandi á milli einstaklinga með
samhæfa farsíma. SIP-sniðið verður einnig að geta
móttekið samnýtingu.
SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt
er að vista þær í tækinu. Þjónustuveitan getur sent þér
stillingarnar.
Ef þú veist SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið
það inn á tengiliðarspjald hans. Opnaðu
Tengiliðir
í
aðalvalmyndinni og síðan tengiliðarspjaldið (eða búðu
til nýtt spjald ef ekkert spjald hefur verið búið til áður).
Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsing.
>
SIP
. Sláðu inn
SIP-vistfangið á forminu sip:notandanafn@vistfang
(hægt er að nota IP-tölu í stað vistfangs).
UMTS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
• Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
• Gakktu úr skugga um að UMTS-aðgangsstaða-
stillingarnar hafi verið rétt valdar. Nánari upplýsingar,
sjá „Tenging“ á bls. 106.