Nokia N93 - Myndir og hreyfimyndir skoðaðar

background image

Myndir og hreyfimyndir skoðaðar

Kyrrmyndir og hreyfimyndir sem teknar eru með
myndavélinni eru vistaðar í

Myn. & hr.m.

í

Gallerí

.

Einnig er hægt að taka við myndum og myndskrám sem
margmiðlunarboðum, tölvupóstviðhengjum, um Bluetooth
og innrautt tengi. Nauðsynlegt er að vista móttekna mynd
eða hreyfimynd í minni tækisins eða á samhæfu
minniskorti (ef það er í tækinu) til að geta skoðað skrána
í galleríinu eða spilaranum.

Opnaðu

Myn. & hr.m.

í

Gallerí

. Myndirnar og

hreyfimyndirnar eru í lykkju og þeim er raðað eftir
dagsetningu. Fjöldi skránna er sýndur. Skrunaðu til hægri
eða vinstri til að skoða skrárnar, eina af annarri. Hægt er
að skoða skrár í hópi með því að skruna upp eða niður.

Mynd eða hreyfimynd er breytt með því að velja

Valkostir

>

Breyta

. Myndvinnslan opnast. Sjá

„Hreyfimyndum breytt“ á bls. 31. Sjá „Myndum breytt“
á bls. 33.

Til að bæta mynd eða myndinnskoti við albúm í galleríinu
skaltu velja

Valkostir

>

Albúm

>

Setja inn í albúm

. Sjá

„Albúm“ á bls. 35.

Til að búa til sérsniðin myndinnskot skaltu velja
myndinnskot, eða nokkur innskot í galleríinu og síðan

Valkostir

>

Breyta

. Sjá „Hreyfimyndum breytt“ á bls. 31.

Til að prenta út myndirnar á samhæfum prentara eða vista
þær á minniskortinu (ef það er í tækinu) til prentunar
skaltu velja

Valkostir

>

Prentun

. Sjá „Myndprentun“ á

bls. 42.

Til að senda margmiðlunarboð til þjónustuveitunnar
sem gerir kleift að hlaða upp skrám (sérþjónusta),
skaltu ýta á

og velja

Hlaða upp

(ef það er til staðar).

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Til að skoða mynd skal skruna að henni og ýta á

.

Til að súmma mynd sem hefur verið opnuð skaltu velja

Valkostir

>

Stækka

eða

Minnka

. Efst á skjánum sést

hversu mikið er súmmað. Súmmhlutfallið er ekki vistað.

Til að nota myndina sem bakgrunnsmynd skaltu velja hana
og síðan

Valkostir

>

Tengja

>

Nota sem veggfóður

.

Mynd eða hreyfimynd er eytt með því að ýta á

.