Nokia N93 - Visual Radio

background image

Visual Radio

Hægt er að nota Visual Radio (sérþjónusta) sem venjulegt
FM-útvarp til að hlusta og vista stöðvar. Ef útvarpsstöðin
býður upp á sjónræna þjónustu (Visual Radio service) er
hægt að sjá upplýsingar á skjánum sem tengjast því efni
sem hlustað er á. Sjónræn þjónusta byggir á pakkagögnum
(sérþjónusta). Hægt er að hlusta á FM-útvarpið á sama
tíma og önnur forrit tækisins eru notuð.

Til að nota sjónræna þjónustu verður tækið að uppfylla
eftirfarandi skilyrði:

• Kveikt verður að vera á því.
• Gilt SIM-kort verður að vera í því.
• Útvarpsstöðin sem hlustað er á, auk símafyrirtækisins

eða þjónustuveitunnar, verður að styðja þjónustuna.

• Nauðsynlegt er að tilgreina internetaðgangsstað til að

tengjast við Visual Radio miðlara þjónustuveitunnar.
Sjá „Aðgangsstaðir“ á bls. 106.

• Nauðsynlegt auðkenni verður að vera til staðar fyrir

Visual Radio og kveikt verður að vera á þjónustunni.
Sjá „Vistaðar stöðvar“ á bls. 78.

Ef þú hefur ekki aðgang að Visual Radio þjónustunni er ekki
víst að símafyrirtækið eða útvarpsstöðvarnar þar sem þú
ert styðji þjónustuna.

FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er á þráðlausa
tækinu. Samhæft höfuðtól eða aukahlutur þarf að vera
tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.

Hægt er að hlusta á útvarpið með innbyggða hátalaranum
eða samhæfu höfuðtóli. Þegar hátalarinn er notaður á
höfuðtólið að vera tengt við tækið. Höfuðtólasnúran er
notuð sem loftnet fyrir útvarpið þannig að hún skal hanga
laus.

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum

hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.

Hægt er að hringja eða svara símtali þegar hlustað er á
útvarpið. Slökkt er á útvarpinu þegar símtal er í gangi.
Þegar símtalinu er lokið fer útvarpið aftur í gang.

Útvarpið velur tíðnisviðið út frá landsupplýsingunum
sem það fær frá símkerfinu.

background image

Eigin forrit

77

Hægt er að hlusta á útvarpið þegar tækið er lokað.
Hægt er að birta upplýsingar um stöðvar á ytri skjánum.
Styddu á

til að taka af eða setja hljóð í útvarpið.