
Spurningar & Svör
Lykilorð
Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN- eða
PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefna númerið er 12345. Hafðu samband við
söluaðilann ef þú týnir eða gleymir læsingarnúmerinu.
Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú
hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við
þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð má fá hjá aðgangsstaðaþjónustu,
t.d. netþjónustuveitu eða þjónustuveitu.
Forrit svarar ekki
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e. svarar ekki?
Svar: Haltu inni
takkanum til að opna skiptiglugga
forrita. Flettu svo að forritinu og ýttu á
.
Bluetooth-tenging
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?
Svar: Kannaðu hvort Bluetooth-tengingin sé virk í báðum
tækjunum. Gakktu úr skugga um að fjarlægðin á milli
tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að
ekki séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra. Gakktu
úr skugga um að hitt tækið sé stillt á sýnilegt. Gakktu úr
skugga um að tækin séu samhæf.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-
tengingunni í tækinu þínu. Veldu
Tenging
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Vafraþjónusta
Spurning: Hvað geri ég ef þessi skilaboð birtast:
Enginn gildur
aðgangsstaður tilgreindur. Tilgreina í
Þjónustustillingum.
?
Svar: Settu inn réttar vafrastillingar. Hafðu samband
við þjónustuveituna þína til að fá leiðbeiningar.
Myndavél
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar: Fjarlægðu plasthlífina sem er yfir skjánum og
myndavélarlinsunni. Gakktu úr skugga um að
hlífðargler myndavélarlinsunnar sé hreint.
Spurning: Hvers vegna heyrist í myndavélinni þegar autofocus
eða súmm er notað?
Svar: Súmm- og AF-linsuhreyfingar gefa frá sér hljóð. V
eldu
Valkostir
>
Stillingar
>
Ákjósanleg stækkun við upptöku
>
Slökkt
til að ekki heyrist neitt hljóð þegar súmmað er
með linsunni við upptöku.

Úrræðaleit
119
Spurning:Hvers vegna heyrist gjarnan meira þegar myndir
eða hreyfimyndir eru teknar með næturstillingu þegar
skuggsýnt er, heldur en þegar venjuleg stilling er notuð?
Svar: Útgangsmerki myndflögunnar er magnað meira í
næturstillingu, til að gefa betri lýsingu þegar skuggsýnt
er, heldur en í venjulegri stillingu. Á móti kemur að meira
heyrist þegar myndir og hreyfimyndir eru teknar.
Spurning: Hvers vegna virðast VGA-myndrammar skörðóttir
þegar kveikt er á myndstöðugleika (video stabilization)?
Svar: Hver myndrammi er stækkaður úr lítilli stærð innan VGA
í VGA-stærð þegar kveikt er á myndstöðugleika. Þess vegna
eru gæði hvers ramma minni en ella.
Skjár
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum þegar ég kveiki á tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur
eðlilegan hlut.
Heimakerfi (UPnP)
Spurning: Af hverju get ég ekki samnýtt skrár í öðrum
tækjum?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir sett upp stillingarnar
fyrir heimakerfið. Veldu
Tenging
>
Heimanet
>
Samnýta
efni
>
Samnýting efnis
og þá styður tækið UpnP.
Notkunarskrá
Spurning: Af hverju er notkunarskráin tóm?
Svar: Ef til vill hefurðu valið síu og engin samskipti hafa verið
skráð sem hæfa henni. Hægt er að skoða öll samskipti með
því að velja
Forritin mín
>
Notkunarskrá
>
Valkostir
>
Sía
>
Öll samskipti
.
Lítið minni
Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í tækinu er lítið?
Svar: Hægt er að eyða eftirfarandi hlutum reglulega til að
komast hjá því að minnið fyllist:
•
Skilaboðum úr möppunum
Innhólf
,
Uppköst
og
Sendir
hlutir
í
Skilaboð
•
Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins
•
Vistuðum vefsíðum
•
Myndum í
Gallerí
Til að eyða tengiliðaupplýsingum, dagbókaratriðum, teljurum,
kostnaðarteljurum, leikjastigum, eða hvaða gögnum öðrum
sem er, skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja gögnin.
Ef verið er að eyða mörgum atriðum og ein eftirfarandi
athugasemda birtist:
Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð. Eyða
þarf einhv. gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir. Eyða þarf
einhverjum gögnum.
skaltu reyna að eyða einu atriði í einu
(með því að eyða fyrst því sem tekur minnst pláss).

Úrræðaleit
120
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín?
Svar: Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi leiðum:
•
Notaðu Nokia PC Suite til að búa til öryggisafrit af
öllum gögnum og setja það á samhæfa tölvu.
•
Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu svo
myndirnar í tölvunni.
•
Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.
•
Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.
Skilaboð
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?
Svar: Tengiliðarspjaldið inniheldur hvorki símanúmer né
tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem vantar á
tengiliðarspjaldið í
Tengiliðir
.
Margmiðlunarboð
Spurning: Hvað á ég að gera þegar tækið getur ekki tekið
við margmiðlunarboðum vegna þess að minnið er fullt?
Svar: Í villuboðunum koma fram upplýsingar um hvað þarf að
losa um mikið minni:
Ekki hægt að sækja skilaboð. Eyða
verður einhverjum gögnum fyrst.
Til að sjá hvers konar
gögn eru geymd í símanum og hversu mikið minni
mismunandi gögn nota skaltu velja
Skráarstjórn
>
Valkostir
>
Minnisupplýsingar
.
Spurning: Tilkynningin
Sæki skilaboð
birtist í stutta stund.
Hvað er að?
Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarboð frá
skilaboðastöðinni. Gakktu úr skugga um að stillingar
fyrir margmiðlunarboð séu rétt valdar og að
símanúmer og vefföng séu rétt. Veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
MMS
.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar tækið
kemur henni alltaf á aftur?
Svar: Til að koma í veg fyrir að tækið komi á gagnatengingu
skaltu velja
Skilaboð
og svo eitt af eftirtöldu:
Þegar boð berast
>
Sækja síðar
—til að láta
margmiðlunarboðamiðstöðina vista skilaboðin sem þú vilt
sækja síðar, t.d. eftir að þú hefur athugað stillingarnar. Eftir
þessa breytingu þarf tækið að senda upplýsingaboð til
símkerfisins. Til að sækja skilaboðin strax skaltu velja
Sækja strax
.
Þegar boð berast
>
Hafna skilaboðum
—Til
að hafna öllum margmiðlunarboðum sem þér hafa verið
send. Eftir þessa breytingu þarf tækið að senda
upplýsingaboð til símkerfisins og skilaboðamiðstöð
margmiðlunarboðanna eyðir öllum margmiðlunarboðum
sem bíða þess að verða sótt.
Móttaka margm.
>
Óvirk
—til
að hunsa öll margmiðlunarboð sem berast. Eftir þessa
breytingu kemur tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið
vegna margmiðlunarboða.
Tenging við tölvu
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja tækið
við tölvuna mína?
Svar: Gakktu úr skugga um að Nokia PC Suite sé uppsett og í
gangi á tölvunni þinni. Nánari upplýsingar er að finna í
notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite á DVD-diskinum.
Til að sjá upplýsingar um notkun PC Suite skaltu skoða
hjálparvalmyndina í Nokia PC Suite eða þjónustusíðurnar á
www.nokia.com.

Úrræðaleit
121
Þráðlaust staðarnet
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð aðgangsstað fyrir
þráðlaust staðarnet þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða.
Þú getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota
falinn SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til
internetaðgangsstað fyrir þráðlausa staðarnetið í Nokia-
tækinu þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu staðarneti í Nokia-
tækinu mínu?
Svar: Þú getur ekki slökkt á þráðlausu staðarneti í Nokia-
tækinu þínu. Til að spara rafhlöðuna getur þú hins vegar
stillt Nokia-tækið þannig að það leiti ekki að netkerfum í
boði.
Til að slökkva á leitinni:
1
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Samband
>
Þráðlaust staðarnet
.
2
Veldu
Finna staðarnet
>
Aldrei
.
3
Breytingarnar eru vistaðar með því að ýta á
Lokið
.
Þegar
Finna staðarnet
er stillt á
Aldrei
fylgist Nokia-tækið
ennþá með netkerfum á svæðinu og hægt er að nota þráðlaus
staðarnet líkt og vanalega.